vinsamlegast skrá inn eða stofna aðgang fyrst!

sýnishorn

Í morgunsárið
Junko Nakamura
am forlag
ISK2990/-

Hugljúft morgunævintýri með frískandi og glaðlegum teikningum

Hundurinn Lubbi vaknar af nætursvefni og vappar inn í svefnherbergi til herra Bangsa til að ýta við honum. Bangsi er í essinu sínu eftir góðan nætursvefn. Þeir félagar fá sér morgunverð: gómsæt brauðsneið með hunangi veitir herra Bangsa meira að segja innblástur svo að hann seilist eftir minnisbókinni sinni. Á meðan lýsir morgunsólskinið upp eldhúsið og veröldina fyrir utan gluggann. Á morgnana er allt svo fallegt og ferskt, fullt af möguleikum!

Í morgunsárið minnir okkur á að hver nýr dagur er undur og sýnir börnum hversu ljúft það er að eiga sér skemmtilega morgunrútínu. Ef við hefjum daginn ánægð og brosmild aukast líkurnar á því að framhaldið verði gott.
Bókin brýnir líka fyrir okkur að sýna hvert öðru áhuga og virðingu og halda að lokinni góðri morgunstund út í heiminn með opin móttökuskilyrði fyrir öllu því sem veröldin hefur upp á að bjóða.

Um vöruna
Fyrir 1 árs og eldri Harðspjalda 19 × 25 sm 44 blaðsíður Junko Nakamura (f. 1975) er japanskur Parísarbúi sem skrifar og teiknar barnabækur í algjörum sérflokki. Hún hefur einstakt lag á því að gæða hversdaginn ljóðrænum töfrum og hefur slegið í gegn sem barnabókahöfundur í Frakklandi. Í morgunsárið er ein vinsælasta bók hennar enda einstaklega hugljúf og skreytt frískandi og glaðlegum teikningum. Sverrir Norland íslenskaði.